Японска-ісландская кніга-білінгва
私たち、エスペラントの発展のための世界的な運動に加わる者たちは、この宣言をすべての政府、国際組織および良心ある人々に対して送り、ここに表明された目標に向けて私たちが不退転の決意をもって活動し続けることを宣言するとともに、それぞれの組織と個人とが私たちのこの努力に加わるよう呼びかける。
Við, sem erum félagsmenn í alþjóðlegri hreyfingu sem vinnur að framgangi alþjóðamálsins esperanto, beinum þessu ávarpi til ríkisstjórna, alþjóðasamtaka, félagasamtaka og allra velviljaðra manna, lýsum yfir staðfastri ætlun okkar að vinna áfram í þágu þeirra markmiða sem hér eru tilgreind og bjóðum þeim sem hér eru ávarpaðir til samvinnu í því starfi.
エスペラントは、1887年に国際的コミュニケーションのための補助言語案として提唱された後、生命力と表現力に富んだ言語へと速やかな発達を遂げ、すでに一世紀以上にわたって言語と文化の壁を越えて人々を結びつける働きを果たしてきた。エスペラントの使用者たちが目指してきた理想は今なお重要性と現代的意義を失っていない。私たちは公正で効果的な言語秩序のためには以下に述べる原則が必須であると考えるが、いずれかの民族語を世界語として使用しても、また今後いかに通信技術が進歩し、新しい言語教育法が開発されるにしても、これらの原則を実現することはできないであろう。
Árið 1887 birtist esperanto í frumgerð sem þróaðist hratt í kröftugt, blæbrigðaríkt tungumál. Í meira en öld hefur þetta mál, sem þegar í upphafi var ætlað að vera hjálparmál í alþjóðlegum samskiptum, gegnt hlutverki sem tengiliður manna yfir málleg og menningarleg landamæri. Upphaflegt markmið esperantos sem samþjóðlegs hjálparmáls hefur ekki misst mikilvægi sitt og raungildi í heimi nútímans. Notkun nokkura þjóðmála víðs vegarum heim, framfarir í samskiptatækni og nýjar aðferðir í málakennslu munu að líkindum ekki gera að veruleika eftirtalin meginatriði sem við teljum grundvöll réttlátrar og virkrar lausnar tungumálavandans.
1. 民主性
1. Lýðræði
あるコミュニケーションのしくみが、特定の人々には一生涯の特権を与える一方で、他の人々にはより低い段階の能力の獲得にさえ多年の努力をつぎ込むよう求めるなら、それは根本において反民主的なものである。エスペラントは、他の言語と同様に、完全ではないが、平等な全世界的コミュニケーションという領域では、どの競合する言語に比べてもはるかにまさっている。
Samskiptakerfi, sem veitir sumum ævilöng forréttindi en krefst þess af öðrum að þeir leggi á sig áralangt erfiði til að ná minniháttar færni, er í grundvallaratriðum andlýðræðislegt. Þótt esperanto sé ekki fullkomið fremur en nokkurt annað tungumál stendur það miklu framar sérhverjum keppinaut á sviði alþjóðlegra samskipta á jafnréttisgrundvelli.
言語の不平等は、国際レベルを含めたあらゆるレベルにおいて、コミュニケーションの不平等を生み出すものであると、私たちは主張する。私たちの運動は民主的なコミュニケーションを目指すものである。
Við fullyrðum að mállegt misrétti leiði af sér samskiptalegt misrétti á öllum stigum, þar á meðal alþjóðlegum. Við vinnum að framgangi lýðræðislegra samskipta.
2. 民族性を超えた教育
2. Menntun yfir landamæri
民族語はそれぞれ特定の文化・国家と結びついている。例えば、英語を学習する生徒は英語圏の諸国、特にアメリカ合衆国とイギリスの文化・地理・政治について学ぶことになる。それに対してエスペラントを学習する生徒は、国境のない世界について学ぶのであって、そこではどの国も故国と見なされる。
Sérhvert þjóðmál er bundið ákveðinni menningu og þjóð(um). Nemandi, sem lærir ensku, lærir jafnframt um menningu, landafræði og stjórnmál enskumælandi þjóða, einkum Bandaríkjamanna og Breta. Nemandi, sem lærir esperanto, lærir um heiminn án markalína þar sem séhrvert land á sér heimili.
いずれの民族語を用いた教育も特定の世界観に結びついていると、私たちは主張する。私たちの運動は民族性を超えた教育を目指すものである。
Við fullyrðum að mentun sem veitist á hvaða þjóðmáli sem er sé bundin tilteknu viðhorfi til heimsins. Við vinnum að menntun yfir landamæri.
3. 教育上の効果
3. Kennsluvirkni
外国語を学習する人の中で、それを習得できる人の割合はごく低い。それに対してエスペラントの習得は独習によっても可能であり、他の言語を学ぶための予備的学習としての効果についてもさまざまな研究報告がある。また、生徒の言語意識を高めるための教科においてエスペラントを中核に位置づけるよう勧める声もある。
Aðeins lítill hundraðshluti þeirra, sem læra erlent tungumál, nær á því verulegu valdi. Fullt vald á esperanto næst jafnvel með sjálfsnámi. Rannsóknir hafa leitt í ljós gildisáhrif esperantonáms fyrir nám í öðrum málum og námsgreinum. Mælt hefur verið með esperanto sem kjarnanámi við þroskun á málvitund nemenda.
民族語の学習は難しく、第二言語の知識があればそれによって益を受けるはずの多くの学習者にとって常に障害となり続けるであろうと、私たちは主張する。私たちの運動は効果的な言語教育を目指すものである。
Við fullyrðum að erfiðleikar við nám þjóðmála muni ávallt reynast þröskuldur á vegi margra nemenda sem kunnátta í öðru máli kæmi samt að gagni. Við vinnum að virku málanámi.
4. 多言語性
4. Fjöltyngi
エスペラントの共同体は、その構成員が例外なく二つ以上の言語を話すという、世界的規模の言語共同体としては数少ない例の一つである。構成員はそれぞれ、少なくとも一つの非母語を会話のできる程度まで学ぶことを自己に課している。多くの場合、このことは複数の言語に対する知識と愛着をもたらし、ひいてはその人の視野をより広くすることにつながっている。
Esperantohreyfingin er eitt af fáum málsamfélögum á heimsvísu þar sem hver og einn eru undantekningarlaust tvítyngdir eða fjöltyngdir. Sérhver félagi í esperantohreyfingunni hefur lært að minnsta kosti eitt annað mál og náð þar talhæfni. Í mörgum tilvikum hefur það leitt til þekkingar og áhuga á fleiri tungumálum og almennt til víðara sjónhrings.
どの言語の話し手にも、その言語の大小を問わず、コミュニケーションが可能な高い水準まで第二言語を習得する現実的な機会が与えられていてしかるべきだと、私たちは主張する。私たちの運動はその機会を提供するものである。
Við fullyrðum að talendur allra tungumála, smárra sem stórra, ættu að hafa möguleika á að tileinka sér annað mál til fullnustu. Við vinnum að því að sá möguleiki verði raunverulegur.
5. 言語上の権利
5. Málréttindi
言語間に力の不平等があることは、世界の大部分の人々にとって、言語的な危機感をもたらし、ときには直接の言語的抑圧となっている。エスペラントの共同体では、母語の大小や公用・非公用を問わず、互いの寛容の精神によって、中立の場に集っている。このような言語における権利と責任の間のバランスは、言語の不平等や紛争に対する新しい解決策を進展させ評価するための先例となるものである。
Ójöfn valdskipting milli tungumála er ávísun á viðvarandi mállegt öryggisleysi eða beina málkúgun mikils hluta jarðarbúa. Innan esperantohreyfingarinnar mætast mælendur stórra og smárra tungumála á hlutleysisgrundvelli sem mótast af gagnkvæmu samkomulagi. Slíkt jafnvægi milli málréttinda og ábyrgðar gefur fordæmi til að þróa og meta aðrar lausnir á mállegu misrétti og átökum milli tungumála.
いずれの言語にも平等な取り扱いを保証する旨が多くの国際的文書に表明されているが、言語間の力の大きな格差はその保証を危うくするものであると、私たちは主張する。私たちの運動は言語上の権利の保証を目指すものである。
Við fullyrðum að hinn gífurlegi valdamunur milli tungumála grafi undan yfirlýsingum fjölda alþjóðlegra samþykkta um tryggingu þess að umfjöllun mála skuli vera á jafnréttisgrundvelli án tillits til tungumála. Við vinnum að málréttindum.
6. 言語の多様性
6. Fjölbreytni tungumála
諸国の政府は往々にして世界における言語の多様性をコミュニケーションと社会発展にとっての障害とみなしがちである。しかし、エスペラントの共同体にとっては、言語の多様性は尽きることなく欠くことのできない豊かさの源泉である。したがって、それぞれの言語はあらゆる生物種と同様にそれ自身すでに価値があり、保護し維持するに値するものである。
Stjórnvöld hinna ýmsu þjóða hneigjast til að líta á hina miklu fjölbreytni tungumála heimsins sem hindrun á vegi samskipta og þróunar. Esperantohreyfingin lítur þannig á sú fjölbreytni sé stöðug og ómissandi uppspretta auðlegðar. Af því leiðir að sérhvert tungumál jafnt sem sérhvert líf hafi gildi í sjálfu sér og eigi því rétt á stuðningi og vernd.
もしコミュニケーションと発展に関する政策がすべての言語の尊重と支持に基礎を置くものでないならば、それは世界の大多数の言語に死を宣告するものであると、私たちは主張する。私たちの運動は言語の多様性を目指すものである。
Við fullyrðum að ef pólitísk afskipti af samskiptum og þróun er ekki byggð á virðingu og stuðningi við öll tungumál, leiði þau til útrýmingar meirihluta tungumála heimsins. Við vinnum að því að tryggja fjölbreytni tungumála.
7. 人間の解放
7. Frelsi mannsins
いかなる言語も、その使用者間のコミュニケーションを可能にすることによって人々を自由にしている一方で、他の人々とのコミュニケーションを阻害することによって不自由にもしている。全世界的なコミュニケーションの道具として立案されたエスペラントは、人間解放の大きな実際的事業の一つである。すなわち、すべての人が各自の地域文化や言語的独自性にしっかりと根ざしていながらそれに制約されず、人類の共同体にその一員として参加することを可能にする事業なのである。
Sérhvert tungumál veitir í senn mælendum sínum frelsi og leggur á þá fjötra, gefur þeim möguleika á samskiptum sín á milli og hindrar samskipti þeirra við aðra. Esperanto er ætlað til samþjóðlegra samskipta og er mikilvæg leið til að auka mannlegt frelsi — leið til að gera sérhverjum manni fært að taka þátt í samfélagi mannkynsins sem einstaklingur sem hefur traustar rætur í eigin menningu og þeirri samvitund sem fylgir eigin tungumáli án þess að það setji honum skorður.
数ヶ国の民族語のみを使うことは自己表現やコミュニケーション、連帯の自由に対する障害となることが避けられないと、私たちは主張する。私たちの運動は人間の解放を目指すものである。
Við fullyrðum að samskipti sem einskorðast við notkun þjóðmála takmarki óhjákvæmilega frelsi manna til tjáningar, samskipta og fjölþjóðlegra tengsla. Við vinnum að frelsi mannsins.
Prago, jul. 1996
Prago, jul. 1996
Рэклама